
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Friedrich Merz Þýskalandskanslari sýnir engin merki um að hann hyggist íhuga stöðu sína sem leiðtogi Kristilegra Demókrata, þrátt fyrir afhroð flokksins í kosningunum í Mecklenburg Vorpommern í gær.
Alvarleg áhrif lokunar 2G og 3G-símkerfanna á neyðarhringingar komu ekki í ljós fyrr en tveimur mánuðum áður en útfösun þeirra hófst. Fjarskiptastofa hafði ekki heimild til að stöðva framkvæmdina.
Upplýsingar um ofnæmi og sérfæði skólabarna í Hafnarfirði voru aðgengilegar hverjum sem eftir þeim leituðu. Stjórnandi fyrirtækisins sem annast mötuneyti í sveitarfélaginu segir atvikið hafa verið tilkynnt til Persónuverndar.
Sameinað Rússland, flokkur Vladimírs Pútíns forseta, tryggði sér nægan meirihluta í þinginu í nýafstöðnum kosningum til þess að breyta stjórnarskrá án aðkomu annarra flokka.
Mikil spenna er meðal ESB-ríkja þar sem Frakkar hafa neitað að samþykkja framlengingu á refsiaðgerðum gegn Rússum. Frestur rennur út annað kvöld.
Hafnarfjörður og Stólpi hafa komist að samkomulagi um byggingu á 130 húsum fyrir erlent starfsfólk sem hyggst dvelja á Íslandi til skemmri tíma.
Níu sveitarfélög víða um land hafa boðið nýjum Tækniskóla lóð. Stjórnarformaður skólans segir ólíklegt að skólinn verði utan höfuðborgarsvæðisins.
Kvennalið Breiðabliks í fótbolta verður hluti af stærsta íþróttatölvuleik heims. Framkvæmdastjórinn segir þetta stórfréttir fyrir knattspyrnuheiminn hér á landi.

Útvarpsfréttir.