Ljóð og lög af ýmsum toga
Leikin eru lög sem hafa verið samin við ljóð ýmissa skálda en líka eitt lag þar sem textinn hefur verið íslenskaður. Fyrri hluta þáttarins hljóma lög við ljóð Jakobs Jóhannessonar…
Herbert Guðmundsson varð þekktur þegar hann söng með hljómsveitinni Tilveru. Nýlega fundust hljóðupptökur úr sjónvarpsþætti frá árinu 1971, en sá þáttur er ekki lengur til í safni RÚV. Þar syngur Herbert með Tilveru lögin Children's Heritage, Mr. Great, Peace, One of Us og Come Away Melinda. Einnig eru leikin lög úr sjónvarpsþætti sem Herbert gerði með hljómsveitinni Eik árið 1975. Lögin heita Reflection, You and I, Daytime Girl og Twenty One. Lokalagið er Lagið um veginn sem kom út á fyrstu stóru plötu Herberts árið 1977 sem heitir Á ströndinni.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.