Á tónsviðinu

Tvær enskar ballettsvítur

Meginefni þessa þáttar verða tvær enskar ballettsvítur sem báðar má rekja til ársins 1923: „Old King Cole“ eftir Ralph Vaughan Williams og „Façade“ eftir William Walton. „Old King Cole“ var samið fyrir Enska þjóðdansafélagið og frumflutt í Cambridge 1923. Það er byggt á enskum barnasöng um glaðværa kónginn Cole sem hafði þrjá fiðlara við hirð sína. Í þættinum verður notuð hljóðritun frá árinu 2022 með Konunglegu fílharmóníusveitinni í Liverpool og einleikari er íslenski fiðluleikarinn Eva Þórarinsdóttir. Verkið „Façade“ eftir William Walton var einnig frumflutt árið 1923 og þótti býsna nýstárlegt, skáldkonan Edith Sitwell las ljóð og sex hljóðfæraleikarar léku tónlist Waltons við ljóðin. Árið 1931 var gerður ballett úr „Façade“ og það er svíta úr ballettgerðinni sem leikin verður í þættinum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd

Á tónsviðinu

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,