Tvær enskar ballettsvítur
Meginefni þessa þáttar verða tvær enskar ballettsvítur sem báðar má rekja til ársins 1923: „Old King Cole“ eftir Ralph Vaughan Williams og „Façade“ eftir William Walton. „Old King…
Enska tónskáldið Edward Elgar samdi þrjú af sínum merkustu kammerverkum árið 1918. Það voru strengjakvartett í e-moll, píanókvintett í a-moll og fiðlusónata í e-moll. Í þessum þætti verður fiðlusónatan leikin og einnig verða flutt sönglög eftir Elgar, en sum þeirra samdi hann við ljóð konu sinnar, Alice Elgar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.