Tvær enskar ballettsvítur
Meginefni þessa þáttar verða tvær enskar ballettsvítur sem báðar má rekja til ársins 1923: „Old King Cole“ eftir Ralph Vaughan Williams og „Façade“ eftir William Walton. „Old King…
Mikil spenna ríkir nú á Íslandi út af væntanlegum sólmyrkva. Í þessum þætti verður flutt tónlist sem tengist sólmyrkva eða tunglmyrkva. Þar á meðal er upphafsatriði úr óperunni "Igori fursta" eftir Alexander Borodin, en í því atriði verður sólmyrkvi rétt áður en Igor leggur af stað í mikilvæga herför. Af öðrum tónsmíðum má nefna aríuna "Total eclipse" úr óratóríunni "Samson" eftir Georg Friedrich Händel, sönglagið "At a lunar eclipse" eftir Gerald Finzi og lög úr söngvaflokknum "Canti dell´eclisse" eftir Bernard Rands. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.