Tvær enskar ballettsvítur
Meginefni þessa þáttar verða tvær enskar ballettsvítur sem báðar má rekja til ársins 1923: „Old King Cole“ eftir Ralph Vaughan Williams og „Façade“ eftir William Walton. „Old King…
Tónskáldið Herbert H. Ágústsson fæddist 8. ágúst 1926 og því eru á þessu ári liðin 100 ár frá fæðingu hans. Í tilefni af því verður þátturinn „Á tónsviðinu“ helgaður honum, flutt verk eftir hann og brot úr viðtölum við hann. Herbert Hriberschek var Austurríkismaður að uppruna, en fluttist til Íslands árið 1952 og bjó hér á landi til dauðadags árið 2017. Hann tók þátt í íslensku tónlistarlífi á margvíslegan hátt, sem hornleikari, stjórnandi og ekki síst sem tónskáld.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.