Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Egill Helgason sér um Silfrið í dag. Fyrst kemur til hans Ingileif Jónsdóttir prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands. Þau ræða um stöðuna á Covid á Íslandi í dag. Þá koma þau Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni og Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar og ræða um eignatengsl í sjávarútvegi. Að lokum fær Egill til sín Sólveigu Önnu Jónsdóttur, en hún hætti nýverið sem formaður Eflingar.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.