Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Það er margt góðra gesta hjá Agli Helgasyni í Silfri dagsins. Þangað koma þau Drífa Snædal forseti ASÍ, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA, Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur Viðskiptaráðs, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helgi Pétursson formaður LEB, Tinna Hallgrímsdóttir formaður Ungra umhverfissinna, Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri Viljans, Karen Kjartansdóttir almannatengill og Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.