Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Fanney Birna Jónsdóttir sér um Silfrið í dag. Fyrst koma til hennar þau Páll Valur Björnsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Grindavík, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar.
Þá koma til hennar frambjóðendur til formanns VR, þau Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Helga Guðrún Jónasdóttir frambjóðandi til formanns VR.
Að lokum ræðir Fanney Birna við Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.