Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Fanney Birna Jónsdóttir sér um Silfrið í dag. Í fyrstu mæta þau Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar, Björgvin Guðmundsson almannatengill, Jökull Sólberg Auðunsson ráðgjafi og Kristrún Frostadóttir frambjóðandi Samfylkingarinnar og hagfræðingur. Þau ræða málefni á vettvangi dagsins. Að því loknu kemur til Fanneyjar Birnu hún Lilja G. Karlsdóttir samgönguverkfræðingur. Þær munu ræða um borgarlínu og samgöngumál. Loks kemur Helgi Pétursson frambjóðandi til formanns Landssambands eldri borgara.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.