
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Baldvin Þór Bergsson hefur umsjón með þætti dagsins. Fyrst til að ræða málefni á vettvangi dagsins mæta þau Vilhjálmur Árnason varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Halldóra Mogensen þingflokksformaður Pírata. Þá setjast hjá Baldvini þau Edda Sif Pind Aradóttir framkvæmdastjóri Carbfix og Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti og formaður Hringborðs Norðurslóða, og ræða um förgun koltvísýrings. Að lokum til að ræða um onlyfans og feminisma, Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur og Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.