
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu skipafyrirtæki sem hann hefur verið kenndur við í áratugi.
Sonur Ólafs og nafni, Ólafur Örn Ólafsson, heldur hins vegar áfram sem forstjóri Samskipa eftir kaup spænska fyrirtækisins.
Fjallað er um sögu eignarhalds Ólafs Ólafssonar í Samskipum á skipafélaginu síðastliðna þrjá áratugi. Upphaflega var Samskip skipadeildin í rekstri Sambands íslenskra samvinnufélaga en fyrirtækið var gert að sérstöku hlutafélagi árið 1991.
Eitt af því sem hefur ítrekað komið upp á viðskiptaferli Ólafs Ólafssonar, eftir að hann eignaðist Samskip til að byrja með í gegnum þetta þýska fyrirtæki, eru ítrekuð dæmi um leynd yfir viðskiptum sem hann tengist með eða í gegnum erlenda aðila. Þetta kom meðal upp í viðskiptum hans með Samskip, Búnaðarbankann og í Al Thani-viðskiptunum svokölluðu árið 2008.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.