Það sem kom í ljós í viðskiptum Ólafs í Samskipum
Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu…
Nýi meirihlutinn í borgarstjórn hefur hafið störf af miklum krafti síðustu mánuði.
Uppsagnir á fjölda starfsfólks, niðurskurður á þjónustu á Borgarbókasafninu, fyrirhuguð einkavæðing Ljósleiðarans og umræður um einkarekstrarvæðingu á Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er meðal þeirra mála sem ratað hafa í fréttir á síðustu vikum.
Rætt er um þessa byrjun nýja meirihlutans við prófessorinn Evu Heiðu Önnudóttir sem segir að hún þurfi ekki að koma á óvart og að meirihlutinn þurfi að marka sér stefnu eftir áratuga valdasetu sósíaldemókratískra afla í Reykjavík.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.