Það sem kom í ljós í viðskiptum Ólafs í Samskipum
Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu…
Við förum til Brasilíu í þætti dagsins þar sem forsetakosningar fóru fram í gær. Hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro, fékk flest atkvæði, rúm 47 prósent gegn rúmum 45 prósentum sitjandi forseta, Luiz Inácio Lula da Silva, leiðtoga Verkamannaflokksins. Hvorugur fékk hreinan meirihluta og þess vegna verður kosið aftur eftir tæpar þrjár vikur.
Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor og sérfræðing í málefnum Rómönsku-Ameríku.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.