Svipmynd
Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Haraldur Jónsson myndlistarmaður var getinn í Noregi, fæddist árið 1961 í Helsinki og náði svo að búa í Danmörku áður en hann sigldi með Gullfossi til Íslands á leikskólaaldri. Hann hóf nám í barnaskóla ári á undan jafnöldrum sínum og fluttist til Frakklands þegar hann lauk MR nítján ára gamall. Hann segir framandgervingu alltaf hafa verið hluta af sér, honum líði best í kjarnanum. Haraldur lítur á tungumálið sem skúlptúr en það var meðal annars latína og orðsifjafræði sem leiddu hann á braut myndlistarinnar. Líkaminn, tilfinningar og skynjun mannsins á umhverfi sitt eru einnig þræðir sem ganga í gegnum höfundaverk Haraldar. Hann nam myndlist í Frakklandi , Þýskalandi og á Íslandi og nefnir Joseph Beuys, Fellini og Meredith Monk sem áhrifavalda. Haraldur hefur haldið tugi einkasýninga og tekið þátt í ótal samsýningum um víða veröld. Verk hans eru í eigu helstu opinberu safna á Íslandi sem og í einkasöfnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Haraldur er gestur okkar í Svipmynd Víðsjár þessa vikuna.