Svipmynd
Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Rán Flygenring er teiknari, en einnig rithöfundur, listamaður, hönnuður og aktívisti. Hún fæddist í Noregi en ólst að mestu leyti upp í Hlíðunum, umkringd pennum og pappír með þá ósk í brjósti að verða sendill þegar hún yrði stór. Rán er margverðlaunaður höfundur sem hefur gefið út fjölda bóka, ein eða í félagi við aðra. Í gær kom út hennar þriðja samstarfsverkefni með Hjörleifi Hjartarsyni, bókin Álfar. Rán er náttúruverndarsinni og í sumar vakti hún mikla athygli fyrir myndlýsingar sínar á sögu hvalveiða við Ísland.