
Svipmynd
Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Rúnar Rúnarsson hóf feril sinn í framhaldsskóla á stuttmyndinni Klósettmenningu í miðju kennaraverkfalli. Þar á eftir fylgdi stuttmynd um geimverur og nokkrar heimildamyndir en einnig sinnti Rúnar á þeim tíma ýmsum störfum innan kvikmyndabransans á Íslandi.
Hann komst inn í Danska kvikmyndaháskólann með stuttmyndinni Síðasti bærinn, en sú mynd hlaut fjölda alþjóðlegra verðlauna og var þar að auki tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Tvær stuttmyndir sem einnig nutu mikilla velgengni fylgdu í kjölfarið og árið 2011 frumsýndi Rúnar Eldfjall, sína fyrstu mynd í fullri lengd. Þrestir og Bergmál komu í kjölfarið og velgengni Rúnars á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum hélt áfram. Það má segja að stuttmyndin Síðasti bærinn hafi sett ákveðin tón í höfundaverk Rúnars sem hefur ómað síðan. Kvikmyndir hans eru oftar en ekki teknar á filmu, þær eru ljóðrænar þroskasögur um fólk á tímamótum, þar sem umhverfið leikur stórt hlutverk. Þetta eru stórar sögur sem fjalla um það smáa í tilverunni.
Hans nýjasta kvikmynd, Ljósbrot, virðist sverja sig í það höfundaverk en hún hefur verið
valin til sýningar í aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes. Ljósbrot gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu. Upphefst þá rússíbanaferð tilfinninga, þar sem mörkin milli hláturs og gráts, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr. Myndin er opnunarmynd í Un Certain Regard-flokki hátíðarinnar, þar sem kvikmyndum sem sýna listræna djörfung er hampað.

Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.