Lúpína - Light in the Dark
Tónlistarkonan Lúpína sest niður með Danna og fer yfir ferilinn, allt frá því hún byrjaði ung að spila á fiðlu og fram til dagsins í dag. Í spjallinu ræða þau ákvörðun hennar að prófa…
Los Bomboneros y sus bombasticos eru mætt með stórsveitarplötu þar sem 20 hljóðfæraleikarar endurgera tónsmíðar Tómasar R. Einarssonar, eins reyndasta latín-djasstónlistarmanns Íslands. Tómas gaf hljómsveitinni frjálsar hendur til að velja og útsetja úr fjörutíu ára safni sínu, kynslóð sem er 30–40 árum yngri fékk að gera lögin "á sínum forsendum." Sigrún Kristbjörg, Daníel Helgason og Tómas sjálfur ræða hvernig verkefnið varð til, hvað skilur að tónskáld og útsetjara, og hvernig gömul hugarfóstur Tómasar sprungu út á nýjan hátt fyrir framan fullt hús í Salnum.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.