Lúpína - Light in the Dark
Tónlistarkonan Lúpína sest niður með Danna og fer yfir ferilinn, allt frá því hún byrjaði ung að spila á fiðlu og fram til dagsins í dag. Í spjallinu ræða þau ákvörðun hennar að prófa…
Í Plötu vikunnar fáum við í heimsókn Örn Eldjárn, sem ásamt systrum sínum, Ösp og Björk, myndar hljómsveitina Blood Harmony. Þau senda nú frá sér plötuna Simple Pleasures, sem varð til þegar systkinin fluttu öll norður í Svarfaðardal árið 2020. Við ræðum um „blóðböndin“ í raddsetningunum, áhrif frá kántrítónlist og sænskum vísum, og hvernig það er að vinna tónlist saman á æskuheimilinu í miðjum heimsfaraldri.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.