Hvernig breytti 9/11 heiminum?
Í þessum þætti Krakkaheimskviða minnumst við þess að nýlega voru 25 ár liðin frá mannskæðustu hryðjuverkum sögunnar. Hvað var það sem gerðist 11. september 2001 og hvernig breyttu…
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnumst við góðgerðarhetjunni Joshua Williams, einni af upphafsröddunum í hverjum þætti. Hann hefur unnið við góðgerðarmál síðan hann var fjögurra ára! Í seinni hluta þáttarins ræðir Karitas við Hrefnu Þórarinsdóttur sem sér um ungmennastaf 10-12 ára í hinsegin félagsmiðstöðinni. Þær ræða baráttu hinsegin fólks og bakslag, en líka sigra eins og í Taílandi þar sem lögleiðing samkynja hjónabanda tók gildi í vikunni.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir