Hljóðvegur 1

Leyft öllum aldurshópum

Víkingaaðferð, miðbæjarrölt og hvalaskoðun

Við héldum áfram að fjalla um hvalveiðar. Myndband af starfsmönnum Hvals hf að draga langreið í land á meðan Þjóðsöngurinn var spilaður og af starfsmanni að leika sér að kynfærum hvalsins hefur dreifst víða. Hvaða áhrif hefur þetta á aðra anga samfélagsins eins og til dæmis ferðamannaiðnaðinn. Rannveig Grétarsdóttir, eigandi hvalaskoðunar fyrirtækisins Eldingar kom til okkar.

Hólmfríður var á ferð um Selfoss og hitti fyrir Davíð Lúther Sigurðarson í miðbænum annarsvegar og Bjarna Harðarson bóksala hinsvegar.

The Viking Method er líkamsræktaraðferð sem Svava Sigbertsdóttir hefur þróað og kennt í London síðastliðin 20 ár. Stjörnur á borð við Nicole Scherzinger og Amanda Holden æfðu hjá henni. Svava sagði okkur frá Víkingaaðferðinni.

Írskir dagar hófust á mánudaginn. Hjörvar Gunnarsson var á línunni og sagði okkur frá því helsta sem framundan er.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,