Demókratar vinna stórsigur í kosningum í Bandaríkjunum
Silja Bára Ómarsdóttir, háskólarektor og prófessor í alþjóðastjórnmálum, og Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddu úrslit kosninganna í Bandaríkjunum við Boga Ágústsson í Heimsglugganum…
Það var ýmislegt á dagskrá Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag. Fyrstu ráðherrar Norður-Írlands, Skotlands og Wales, sem öll hafa sjálfstæði á dagskránni, hittust í Cardiff og samþykktu að „tími Westminster væri senn á enda“.
Þá ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson um nýja skýrslu um öfugþróun lýðræðis, kosningar í Rússlandi og Serbíu og stjórnmálastöðuna í Svíþjóð. Þar er ljóst að hægri stjórn Ulfs Kristersson hefur misst meirihluta sinn og að Magdalena Anderson, formaður Jafnaðarmanna, reynir að mynda stjórn. Það verður ekki auðvelt því flokkarnir sem hún þarf að fylkja að baki sér eru ósammála um mjög margt.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.