Demókratar vinna stórsigur í kosningum í Bandaríkjunum
Silja Bára Ómarsdóttir, háskólarektor og prófessor í alþjóðastjórnmálum, og Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddu úrslit kosninganna í Bandaríkjunum við Boga Ágústsson í Heimsglugganum…
Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu fundahöld evrópskra leiðtoga í Kaupmannahöfn um fjölþáttaógnina frá Rússum. Leiðtogar Evrópusambandsins þinguðu í gær og í dag bætast fleiri evrópskir leiðtogar í hópinn, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands.
Þá var einnig rætt um úrslit kosninga í Moldóvu þar sem PAS-flokkurinn (Aðgerðir og samstaða), fékk meirihluta þingsæta. PAS vill náið samstarf við Vesturlönd og inngöngu í Evrópusambandið.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.