Íslandsklukkan
Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hún hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf og makkeringar Snæfríðar Íslandssólar…
Heimsljós er stórvirki sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940 og fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Í þessum seinni þætti um verkið ræðum við Bára Gísladóttir, tónskáld, um seinni bindin tvö 3. Hús skáldsins 4. Fegurð himinsins.
Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið.
Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir

Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans.