Íslandsklukkan
Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hún hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf og makkeringar Snæfríðar Íslandssólar…
Halla hittir Magnús Jóhann Ragnarsson, tónlistarmann, á vinnustofu sinni og ræðir við hann um veglegt Laxness safn sem hann hefur komið sér upp. Síðan ræðir Tómas við Gunnlaug Bjarnason, söngvara, um vörumerkið Laxness, þá sérstaklega línurnar sem einkenna flestar bókakápur skáldsins og nefnast sálmabókasvipur.

Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans.