Íslandsklukkan
Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hún hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf og makkeringar Snæfríðar Íslandssólar…
Í þessum sérstaka aukaþætti Aldrei las ég Laxness komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa verið við kvæði hans.

Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans.