18:00
Kvöldfréttir útvarps
Kvöldfréttir 4. apríl 2026

Fréttir

Fréttir

Veðurstofan varar við austanstórhríð á mánudag, annan í páskum. Búist er við talsverðum samgöngutruflunum þegar von er á fjölmörgum á ferðinni.

Bandaríkjaforseti gefur Íransstjórn tvo sólarhringa til þess að semja um firð, eða opna leiðina um Hormússund - annars fari allt til fjandans.

Bílbeltanotkun ungs fólks hefur dregist saman og bregst Samgöngustofa við með átaki. Fjórtánfalt líklegra er að látast í bílslysi sé bílbelti ekki notað.

Starfsmenn Rarik á Egilsstöðum fengu klukkustundar hvíld á milli útkalla þegar raflínur slitnuðu og staur brotnaði aðfaranótt föstudagsins langa, í erfiðum veðurskilyrðum.

Rútuferðir í Hlíðarfjall gerðu sitt til að draga úr umferðaröngþveiti að skíðasvæðinu í dag.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,