12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 4. apríl 2026

Útvarpsfréttir.

Bandaríkjaher leitar í kappi við tímann að hermanni sem var um borð í orrustuþotu sem var skotin niður yfir Íran í gær, írönsk stjórnvöld leita hans líka og bjóða borgurum sínum umbun fyrir að finna hann.

Hótanir Bandaríkjaforseta um að draga landið úr Nató geta dregið mjög úr fælingarmætti bandalagsins, segir formaður Varðbergs. Hótanirnar séu stórkarlalegar en hafi mikil áhrif.

Stefnt er að opnun Fjarðarheiðar um eða eftir hádegi. Varað er við erfiðum akstursskilyrðum á Norðausturlandi, Austfjörðum og suður að Höfn fram á páskadagsmorgun.

Landsmönnum sem fara í sólina á Kanaríeyjum um páska fjölgar ár frá ári. Íslensk kona búsett á Tenerife segist heyra íslensku á öðru hverju götuhorni.

Spenna ríkir vegna nýrra þátta um galdrastrákinn Harry Potter, sem sýndir verða um jólin – en þó sömuleiðis reiði, því ekki allir fyrirgefa skoðanir höfundarins J.K. Rowling á réttindabaráttu trans fólks.

Og það er páskadagur á morgun. Við förum í páskaeggjaleit í fréttatímanum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 18 mín.
,