Elvar ræður sínum næturstað
Elvar Smári Júlíusson lærði ungur á ýmis hljóðfæri og féll fyrir tónlist. Hann langaði í hljómsveit en örlögin höguðu því svo að hann tók að aðstoða aðra með upptökur, útsetningar…
Tónlistarkonan Salka Valsdóttir var í hópi ungra kvenna sem ákváðu að taka sitt pláss í hiphophreyfingu upphafs annars áratugar aldarinnar, fyrst í tvíeykinu Cyber en síðan líka sem ein Reykjavíkurdætra. Með tímanum lá leið hennar í hljóðstjórn og -hönnun og tónsmíðar og fyrsta sólóskífa hennar, Premiere, kom út fyrir tveimur árum. Sú átti upphaflega að vera raftónlistarplata, en orðin eru aldrei langt undan hjá Sölku. Nú síðast kom svo út plata með tónlistinni við uppsetningu Borgarleihússins á leikritinu um Hamlet Danaprins.
Lagalisti:
CRAP - BARNAEFNI
Premiere - The Flower Phallus
Premiere - Tea
Premiere - Yet Again
Vigdís - Nostalgía
HAMLET - HAMLET

Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson