Morgunvaktin

Blönduós, Bríet Bjarnhéðinsdóttir og sígild tónlist

Það verður mikið um dýrðir á Blönduósi á morgun þegar haldið verður upp á 150 ára afmæli bæjarins. 150 ár eru sem sagt liðin síðan Blönduós hlaut kaupstaðarréttindi. Við slógum á þráðinn til sveitarstjórans Svavars Pálssonar og spjölluðum um Blönduós í sögu og samtíð.

Á afmælishátíðinni á morgun verður minnisvarði um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur afhjúpaður. Bríet fæddist á Haukagili í Vatnsdal, spölkorn frá Blönduósi. Við ræddum um brautryðjendastörf Bríetar í kvenréttindabaráttu við formann Kvenréttindafélags Íslands, Tatjönu Latinovic.

Svo er það sígilda tónlistin. Við endurlékum samtal sem við áttum við Magnús Lyngdal fyrir um það bil ári. Magnús sagði frá því hvernig hann hlustar á tónlist og lék brot úr nokkrum uppáhalds númerum.

Tónlist:

Slagarasveitin - Tanginn.

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps - Íslands fjöll.

Bríet - Sólblóm.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,