Morgunvaktin

Kosningar í Bandaríkjunum og Hernámsæskan

Í Heimsglugganum var fjallað um niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum. Demókratar unnu stórsigur en hvers vegna? Bogi Ágústsson fór yfir stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum með Silju Báru Ómarsdóttur háskólarektor og Sigríði Rut Júlíusdóttur héraðsdómara - þær þekkja vel til mála vestan hafs.

Út er komin bókin Hernámsæskan - áhrif seinni heimstyrjaldar á íslenskt æskufólk. Hvernig upplifðu Íslendingar stríðsárin og hver vor usamskiptin við herinn? Þessi tími hafði mikil áhrif á börn og ungt fólk. Sagnfræðingurinn Leifur Reynisson skrifar bókina og hann kom til okkar og sagði frá.

Tónlist:

Bob Dylan - I Believe in You.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,