Ljóðabókin syngur II

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 4 af 6

Fjallað er um fyrstu ljóðabók Jóhannesar úr Kötlum, „Bí bí og blaka“, sem kom út 1926. Mörg ljóðin í henni eru vel sönghæf og hafa hrifið tónskáld. Þar á meðal er ljóðið „Vikivaki“, sem hefur viðkvæðið „Vorið kemur, heimur hlýnar“, en við það samdi Valgeir Guðjónsson þekkt lag. Af öðrum tónskáldum sem hafa samið lög við ljóð úr bókinni má nefna Jón Björnsson, Eyþór Stefánsson, Maríu Brynjólfsdóttur og Gunnstein Ólafsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir. Lesari er Leifur Hauksson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. september 2019.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Ljóðabókin syngur II

Una Margrét Jónsdóttir fjallar um ljóðbækur ýmissa höfunda og lögin við ljóðin.

Þættir

,