Come on-a my house
Litla flugan lætur hugann reika um sjötta áratuginn og sækir eldgamlar plötur í kjallarann með Rosemary Clooney, Les Paul, Mary Ford, Jonah Jones, Louis Prima, Doris Day o.fl. Umsjón:…
Litla flugan býður upp í dans með hljómsveitum Friðjóns Jóhannssonar, Örvars Kristjánssonar og Finns Eydal. Meðal annars boðið upp á Tveggjamannaræl með Örvari, Vorsöng með Helenu og Finni, og Síðasta dansinn með Friðjóni Jóhannssyni og félögum.

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.