Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Tónlistarárið 1971

Litla flugan bregður sér í terlínbuxurnar; horfir til himins á eftir Apollo fjórtánda og gramsar í gömlum plötubunka frá árinu 1971. Laxárdeilan geisar á síðum dagblaðanna og í sölum Alþingis; Þrjú á palli syngja Lífið er lotterí og Mjöll Hólm fagnar því að Jón er kominn heim. Einnig syngur Cat Stevens um tunglskuggann, Moonshadow, og James Taylor flytur Grammyverðlaunalag Carole King, You've got a friend. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,