Í leit að lesbíum
Hinsegin kona á lausu reynir að komast að því hvernig hún getur eignast kærustu og hvað það sé sem einkenni stefnumótamenningu hinsegin kvenna.
Íslenskur skiptinemi í Hollandi eignaðist eltihrelli þegar hún flutti í stóra blokk í Hollandi. Jafnóðum og hún tókst á við það sagði hún frá reynslu sinni í formi „storytime” á TikTok og fékk ótrúleg viðbrögð. Hvað er þessi sögustund og hvaða áhrif hefur þetta frásagnarform á sögumanninn?
Umsjón: Snæþór Bjarki Jónsson.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.