
Hljóðvegur 1
Hljóðvegur 1 er á síðdegisvaktinni í sumar og fylgist með mannlífi og helstu fréttum um land allt.
Jóhann Alfreð var á ferðinni og kíkti annarsvegar á skipuleggjendur Norðanpaunk á Laugarbakka en hátíðin er nokkurskonar ættarmót pönkara. Einnig tók hann út stemminguna í Víðigerði.
Smáhátíðin Nábrókin í Trékyllisvík fer fram um helgina. Þar verður meðal annars keppt í mýrarbolta. Ellen Björg Björnsdóttir, ein skipuleggjanda, var á línunni og sagði okkur frá hátíðinni með þessu óhugnalega nafni.
Atli Fannar er kominn úr sumarfríi svo að við fengum brakandi ferskt meme vikunnar sem tengdist Demókrataflokknum.
Umferðin verður mikil um helgina og er nú oftast mikil á suðurlandi. Sveinn K. Rúnarsson yfirlögregluþjónn á Suðurlandi var á línunni og segja okkur hvernig umferðin hefur gengið hingað til.

Hljóðvegur 1 er á síðdegisvaktinni í sumar og fylgist með mannlífi og helstu fréttum um land allt.