Hljóðvegur 1

Leyft öllum aldurshópum

Páskar á Hljóðvegi 1

Jóhann Alfreð og Steiney opnuðu fyrir símann til að fá páskastemminguna beint frá fólkinu í landinu. Heitar umræður um páskaeggjaleit mynduðust, hvernig er best að fela og hverjir mega finna eggin. Einnig heyrðu þau í Einari Lövdahl rithöfundi sem var staddur á Akureyri að kynna nýútgefna bók sína Gegnumtrekkur. Sigurjón Kjartansson var nýkomin úr pönkgöngu á Ísafirði og lagði línurnar fyrir kvöldið en HAM mun koma fram á Aldrei fór ég suður. Anna Þóra Björnsdóttir var á Kanarí og planar að eyða páskadegi á nektarströnd.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hljóðvegur 1

Hljóðvegur 1 er á síðdegisvaktinni í sumar og fylgist með mannlífi og helstu fréttum um land allt.

Þættir

,