Helgi Sæmundur bauð upp á fjölbreytta Meðmælasúpu
Helgarútgáfan þefar upp menningar og mannlífið víða um land og ekki var nein undantekning á því þennan laugardaginn þegar púlsinn var tekinn á Iceland Airwaves hátíðinni í miðborg…
Lagaþema dagsins hjá Júlíu Margréti var kúltúrbörn, tónlistarmenn sem eiga fræga foreldra og það var úr nægu að velja. Gestir þáttarins voru Katrín Helga Andrésdóttir tónlistarkona sem hrærði í meðmælasúpu og Álfgrímur Aðalsteinsson sem á druslugöngulagið í ár. Fannar Ingi Friðþjófsson í Hipsumhaps var á línunni en hann er að spila á þremur afar ólíkum tónleikum í dag.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.