Helgi Sæmundur bauð upp á fjölbreytta Meðmælasúpu
Helgarútgáfan þefar upp menningar og mannlífið víða um land og ekki var nein undantekning á því þennan laugardaginn þegar púlsinn var tekinn á Iceland Airwaves hátíðinni í miðborg…
Niels Thibaud Girerd og Yrsa Sigurðardóttir voru gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur sem leysti Kristján Frey af í Helgarútgáfu dagsins. Þau sögðu frá uppáhaldsstöðum sínum á landinu. Við flökkuðum líka um landið, skoðuðum alla viðburðina sem eru í gangi og þemað í lagavalinu var einfaldlega farartæki.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.