18:00
Kvöldfréttir útvarps
Tap á Icelandair, lágflugsmenn kærðir, vinnuvélabann, dýralæknaskortur og fíknivarnasjóður Samherja

Fréttir

Fréttir

Icelandair tapaði fjórum milljörðum króna eftir skatta á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir að tekjur hafi aukist um sjö prósent milli ára. Forstjóri félagsins segir horfur góðar fyrir næsta ársfjórðung og von á töluverðum á hagnaði þrátt fyrir hækkandi eldsneytisverð.

Atvinnuvegaráðherra segir Vinnueftirlitið sinna hlutverki sínu með því að banna innflutning á vinnuvélum sem ekki standast kröfur um gæði og öryggi.

Samgöngustofa hyggst kæra tvo flugmenn sem sviptir voru flugréttindum tímabundið vegna lágflugs yfir Vestmannaeyjum í apríl.

Dæmi eru um að dýr í neyð fái ekki aðstoð vegna þess að dýralæknar fást ekki á bakvakt. Formaður Dýralæknafélagsins segir fólk ekki tilbúið að sætta sig við launin.

Formaður SÁÁ telur að með fjárstuðningi frá nýjum átakssjóði gegn fíkniefnum verði hægt að gera enn betur í aðstoð við aðstandendur ungmenna í fíknivanda.

Umsjón: Ásrún Brynja ingvarsdóttir

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,