18:10
Spegillinn - Sumar 2026
Mannfall og mannekla í Úkraínustríðinu

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Fjórum árum og fimm mánuðum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu hefur stríðið milli landanna breyst mikið. Drónar hafa að miklu leyti tekið við af hermönnum í fremstu víglínu, en það breytir því þó ekki að mannfall er enn mikið í báðum herjum. Þá hefur mannfall líka stóraukist í röðum almennra borgara, beggja vegna landamæranna.

Ein afleiðing þessa er sú að æ erfiðara verður að manna herina og hermálayfirvöld í báðum ríkjum hafa í æ ríkari mæli gripið til æ óvandaðri meðala til að fylla skörð þeirra sem falla og særast. Þær aðferðir mæta æ meiri andstöðu - sérstaklega í Úkraínu.

Ævar Örn fjallar um þetta og einnig heyrist í Karli Garðarssyni, fyrrverandi þingmanni, sem verið hefur í Úkraínu að undanförnu.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,