15:30
Sögur og sagnalist

Steinunn Harðardóttir fjallar um sagnalist og sögumenn. Sagnalist er gömul listgrein sem fylgt hefur manninum um aldaraðir. Sögumenn hafa ávallt verið aufúsugestir og veitt kærkomna afþreyingu. Í þáttunum Sögum og sagnalist mun Steinunn ræða við nokkra sagnamenn nútímans, einn í hverjum þætti.

Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2005

Í þættinum er rætt við þau Inga Hans Jónsson, sagnameistara og Sigurborgu Kr. Hannesdóttur, um sagnalist og síðan er efnt til sagnakvölds fyrir þáttinn, að Dalsá í Mosfellsdal þar sem þau segja áhugasömum áheyrendum sögur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 30 mín.
e
Endurflutt.
,