Leiðin í öruggt skjól var löng og krókótt eftir að æskuheimilið fuðraði upp í sprengjuregni. Ferdinand Alfreðsson fylgdi mömmu sinni Helgu Einarsdóttur um stríðshrjáð Þýskaland, Pólland og Danmörku seinni heimstyrjaldarinnar í leit að íverustað. Hefur það áhrif á mann alla ævina að alast upp í stríðsátökum? Eða er það bara eitthvað sem venst og gleymist svo eins og annað á langri ævi?
Umsjónarmaður: Helga Ferdinandsdóttir.
Ævar Kjartansson glímir við eðli trúarinnar, einkum þær áherslur sem Páll postuli og Lúther lögðu á mikilvægi þess að trúa á dauða og upprisu Krists fremur en siðferðileg fordæmi, krossfestinguna frekar en Fjallræðuna.
Ævar Kjartansson ræðir við séra Jakob Rolland prest við kaþólska söfnuðinn í Reykjavík um sameiginlega yfirlysingu Lútherana og kaþólskra um réttlætingu af trú frá 1999.
Í þættinum verður fjallað um Garðar Cortes óperusöngvara sem fæddist árið 1940 og lést 2023. Garðar var einn af helstu tenórsöngvurum Íslands á síðustu tveimur áratugum 20. aldar, en hann var einnig brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi, stofnaði Söngskólann í Reykjavík árið 1973 og Íslensku óperuna 1979. Árið 1981 fékk hann Bjartsýnisverðlaun Brøstes fyrstur manna. Garðar var skólastjóri Söngskólans og óperustjóri Íslensku óperunnar í mörg ár, og stjórnaði einnig kórum og hljómsveitum. Í þættinum verða fluttar hljóðritanir með söng Garðars, rakinn verður ferill hans og flutt brot úr viðtölum við hann og samstarfsfólk hans. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög þar sem hugtökin trú, von, kærleikur og minningar koma við sögu með einum eða öðrum hætti. Fyrstu tvö lögin eru eftir Stefán S. Stefánsson. Þór Breiðfjörð og Regína Ósk Óskarsdóttir syngja fyrra lagið sem heitir Trú, en Þór syngur seinna lagið sem heitir Morgunstund. Páll Róskinkranz syngur lag sem Jóhann G. Jóhannsson samdi 1971 við kærleiksboðskap Páls postula. Hann syngur líka lag sem heitir Náttúrbarn (Ég hugsa um þig) eftir Roland Hartwell en textann gerði Stefán Hilmarsson. Maríanna Másdóttir og Már Guðnason syngja Upp á afskekktri hæð, lag eftir George Bennet en íslenski textinn er eftir Ásmund Einarsson. Anna Gréta Sigurðardóttir flytur sálminn Nú vil ég enn í nafni þínu og Valgerður Guðnadóttir og Edgar Smári Atlason syngja lag Jóhanns Helgasonar Ég á trú. Edgar Smári syngur lagið Ferðalangur sem er eftir Fernando Ortega en íslenska textann gerði Guðlaug Gunnarsdóttir. Hjalti Gunnlaugsson og Þóra Gísladóttir syngja lokalagið sem heitir Sannleikurinn og er eftir Hjalta. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Útvarpsfréttir.
Flestum leiðum að höfuðborgarsvæðinu hefur verið lokað vegna vonskuveðurs og fjölmargir vegir á óvissustigi. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst og miklar raskanir eru á millilandaflugi.
Appelsínugul viðvörun tók gildi á Suðausturlandi klukkan 11:00 og klukkan 14:00 verða appelsínugular viðvaranir í gildi á öllu sunnanverðu landinu.
Tillaga um vopnahlé milli Írans og Bandaríkjanna er sögð til skoðunar á báða bóga. Vopnahléið er sagt geta komið til framkvæmda strax í dag.
Hápunktur Artemis II leiðangursins er í dag þegar Orion-farið með fjóra geimfara innanborðs flýgur umhverfis tunglið í meiri fjarlægð en nokkur maður hefur ferðast áður.
Stórir bakhjarlar hafa dregið til baka stuðning við tónlistarhátíð í Lundúnum sem fer fram í sumar vegna tónlistarmannsins Kanye West, sem kemur þar fram. Ýmsir baráttuhópar gegn gyðinahatri hafa lýst undrun á bókuninni og jafnvel krafist þess að hann fái ekki að koma inn í landið.
32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta lýkur í dag með fimm leikjum. Veðurhamurinn sem gengur yfir hefur þó sín áhrif á viðureignirnar.
Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Íslenskur námsmaður í Bandaríkjunum, Júlíus Maggi Magnús, skráði sig í bandaríska herinn 1944 og var kominn til Filippseyja skömmu áður en stríðinu á Kyrrahafi lauk ári síðar. Hann fylgdist því með stríðslokum og hafði síðan aðsetur í Japan um skeið þar sem þjóðin reyndi að sætta sig við uppgjöfina.
Í ár er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur og ritstjóri fæddist. Hann var um áratugaskeið einn svipmesti leikandi á sviði íslensks þjóðlífs, ritstjóri dagblaðs, áhrifamaður í stjórnmálum og athafnalífi og vinsæll rithöfundur. Í verkum sínum dró hann upp áhrifaríka mynd af þeim miklu umskiptum sem urðu á íslensku samfélagi um miðja tuttugustu öld þegar margra alda gömul þjóðmenning hvarf nánast á einni nóttu og Ísland varð að þéttbýlissamfélagi.
Umsjón: Kristján B. Jónasson
Indriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn helsti skipuleggjandi hátíðarhaldanna í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Umdeildastur var hann þó sem pistlahöfundurinn Svathöfði.

Stefán Ragnar Höskuldsson vissi snemma að hann vildi verða flautuleikari og þurfti aldrei að vera minntur á að æfa sig. Hann ólst upp á Austfjörðum en fór mánaðarlega til Reykjavíkur í flaututíma frá 9 ára aldri, í fylgd föður síns. Hæfileikar, ástríða og þakklæti hafa komið honum eins langt og tónlistarmaður getur náð á einni ævi - Stefán Ragnar leikur nú fyrstu flautu í Berlínarfílharmóníunni, einni fremstu sinfóníuhljómsveit heims. Í samtali við Melkorku Ólafsdóttur rekur Stefán Ragnar leið sína úr sveitinni í skærasta sviðsljósið.
Að vanda er nóg að gera hjá meðlimum Kriðpleirs, á fjörur þeirra rekur áhugavert verkefni sem gæti breytt öllu fyrir þá og fjölskyldur þeirra. Ragnar og Árni eru til í þetta en Friðgeir er hins vegar á leiðinni til Tene þar sem hann ætlar að freista þess að klára bók fyrir jólin.
Leikarar: Árni Vilhjálmsson, Friðgeir Einarsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Ragnheiður Maísól Sturludóttir, Sigrún Hlín Sigurðardóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Ylfa Ösp Áskelsdóttir, Hákon Jóhannesson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Benedikt Nikulás Annes Ketilsson og Jón Kalman Stefánsson.
Hugmynd, handrit og leikstjórn:
Bjarni Jónsson, Friðgeir Einarsson, Árni Vilhjálmsson og Ragnar Ísleifur
Bragason.
Tónlist:
Benni Hemm Hemm.
Hljóðvinnsla:
Gísli Kjaran Kristjánsson.
Ragnar og Ragnheiður bregða á það ráð að bjóða Rúnu pípara og Orra sponsor í sánagusu í þeirri von um að hugmyndin um byggð að þeirra skapi hljóti brautargengi.

Steinunn Harðardóttir fjallar um sagnalist og sögumenn. Sagnalist er gömul listgrein sem fylgt hefur manninum um aldaraðir. Sögumenn hafa ávallt verið aufúsugestir og veitt kærkomna afþreyingu. Í þáttunum Sögum og sagnalist mun Steinunn ræða við nokkra sagnamenn nútímans, einn í hverjum þætti.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2005
Í þættinum er rætt við þau Inga Hans Jónsson, sagnameistara og Sigurborgu Kr. Hannesdóttur, um sagnalist og síðan er efnt til sagnakvölds fyrir þáttinn, að Dalsá í Mosfellsdal þar sem þau segja áhugasömum áheyrendum sögur.

Útvarpsfréttir.

Hljóðritun frá tónleikum Stórsveitar Reykjavíkur sem fram fóru í byrjun árs í Eldborg, Hörpu.
Tónleikarnir eru helgaðir swingtímabilinu, 1930-50, þegar stórsveitir réðu ríkjum í tónlistarheiminum og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma.
Efnisskráin er fengin úr nótnabókum stórsveita Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie, Tommy Dorsey og fleiri og er í upprunalegum útsetningum.
Gestasöngvarar eru Hildur Vala Einarsdóttir, Selma Björnsdóttir og Bjarni Arason.
Stjórnandi og kynnir: Sigurður Flosason.
Um hljóðritun sá Gísli Kjaran Kristjánsson.

Fréttir

Inga Huld Hákonardóttir gerði þættina um konur og kristni árið 1994.
Fjórði þáttur.
Um þátt kvenna í mótun kristninnar.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Snorri Helgason fær til liðs við sig þátttakendur í Reykjavik Folk Festival á þessum tónleikum í Iðnó 20. mars 2026.
Brek: Harpa Þorvaldsdóttir, Jóhann Ingi Benediktsson, Sigmar Þór Matthíasson, Guðmundur Atli Pétursson
Umbra Ensemble: Arngerður María Árnadóttir,
Alexandra Kjeld, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Lilja Dögg Gunnarsdóttir
Svavar Knútur Kristinsson
Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands en á hann rætur að rekja til Íslands í föðurætt auk þess sem hann bjó hér um nokkurt skeið og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum sem þá hét.
Í aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík er enn minnisvarði um námsár Finsens. Þrátt fyrir það er hann mörgum Íslendingum gleymdur og í þessum þætti verður hans minnst, fjallað um tengslin við Ísland, námsárin og afrekin á sviði læknavísinda.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson


frá Veðurstofu Íslands

Steinunn Harðardóttir fjallar um sagnalist og sögumenn. Sagnalist er gömul listgrein sem fylgt hefur manninum um aldaraðir. Sögumenn hafa ávallt verið aufúsugestir og veitt kærkomna afþreyingu. Í þáttunum Sögum og sagnalist mun Steinunn ræða við nokkra sagnamenn nútímans, einn í hverjum þætti.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2005
Þau Ingi Hans Jónsson og Sigurborg Kr. Hannesdóttir sagnameistarar segja sögur á sagnakvöldi að Dansá í Mosfellsdal. Sagnakvöldið var haldið í tilefni að upptöku þessa þátta.
Aldarminning Kristjáns Kristjánssonar stjórnanda KK sextettsins. Kristján gerði miklar kröfur til sjálfs sín og þeirra sem störfuðu með honum. Hann gaf ungu tónlistarfólki tækifæri til sanna sig og ól upp heila kynslóð hljóðfæraleikara og söngvara. Snyrtimennska og vönduð vinnubrögð voru í hávegum og segja má að Kristján hafi gert dægurtónlistarflutning að virðingarstarfi. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Útvarpsfréttir.
Júlía Margrét poppar í morgunsárið og býður hlustendum upp á páskalega tónlist og málshætti, og fær til sín góða gesti sem segja frá sínum páskahefðum.
Júlía poppaði og var á páskalegum nótum í gulri og appelsínugulri viðvörun. Lögin sem voru leikin voru mörg í þema dagsins sem var ástin og sjálfsvorkunn. Gestir þáttarins voru Vilhelm Anton Jónsson heimspekingur og Eva Ruza skemmtikraftur. Þau sögðu frá sínum páskahefðum, því sem hefur drifið á daga þeirra og því sem framundan er.
Lög þáttarins:
Greiningardeildin, Emilíana Torrini, Bogomil Font - Þú stendur alltaf með mér.
Cranberries, The - Linger.
ARCADE FIRE - Ready to Start.
BOB DYLAN - Just Like A Woman.
Baez, Joan - Diamonds and rust.
Friðrik Dór Jónsson, Moses Hightower - Bekkjarmót og jarðarfarir.
SUZANNE VEGA - Luka.
Mars, Bruno - I Just Might.
LAY LOW - Little By Little.
GDRN - Þú sagðir.
Snorri Helgason, Bríet - Mexico.
DAVID BOWIE - Starman.
ROXY MUSIC - More Than This.
Úlfur Úlfur Hljómsveit - Sumarið.
CAGE THE ELEPHANT - Come a Little Closer.
QUARASHI - Stars.
Ásgeir Trausti Einarsson - Ferris Wheel.
THE CURE - Boys don't cry.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
EMINEM - Stan.
TÁR, Elín Eyþórsdóttir Söebech - Fucking Run Like Hell.
FRANZ FERDINAND - Take Me Out.
SLOAN - I Am the Cancer.
Á MÓTI SÓL - Hvar Sem Ég Fer.
FRANKIE GOES TO HOLLYWOOD - Relax.
MARK RONSON & LYKKE LI - Late Night Feelings.
Laufey - Silver Lining.
Eurythmics - Here Comes the Rain Again.
SKE - Julietta 2.
SúEllen - Sálmur 1703.
BECK - Loser.
Carpenter, Sabrina - When Did You Get Hot.
Jón Jónsson Tónlistarm., Una Torfadóttir - Vertu hjá mér.
VÖK - Miss confidence.
NICK CAVE & THE BAD SEEDS - Henry Lee.
Blondie - One Way Or Another.
Útvarpsfréttir.
Flestum leiðum að höfuðborgarsvæðinu hefur verið lokað vegna vonskuveðurs og fjölmargir vegir á óvissustigi. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst og miklar raskanir eru á millilandaflugi.
Appelsínugul viðvörun tók gildi á Suðausturlandi klukkan 11:00 og klukkan 14:00 verða appelsínugular viðvaranir í gildi á öllu sunnanverðu landinu.
Tillaga um vopnahlé milli Írans og Bandaríkjanna er sögð til skoðunar á báða bóga. Vopnahléið er sagt geta komið til framkvæmda strax í dag.
Hápunktur Artemis II leiðangursins er í dag þegar Orion-farið með fjóra geimfara innanborðs flýgur umhverfis tunglið í meiri fjarlægð en nokkur maður hefur ferðast áður.
Stórir bakhjarlar hafa dregið til baka stuðning við tónlistarhátíð í Lundúnum sem fer fram í sumar vegna tónlistarmannsins Kanye West, sem kemur þar fram. Ýmsir baráttuhópar gegn gyðinahatri hafa lýst undrun á bókuninni og jafnvel krafist þess að hann fái ekki að koma inn í landið.
32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta lýkur í dag með fimm leikjum. Veðurhamurinn sem gengur yfir hefur þó sín áhrif á viðureignirnar.

Steiney Skúladóttir er á vaktinni eftir hádegi, fylgist með veðri og færð og leikur létta tónlist.

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í fimmta þætti eru árin 1987 og 1988 krufin til mergjar og þar koma m.a. við sögu hljómsveitin MX21 og Bubba-plöturnar Dögun, Serbian flower og Bláir draumar. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr útvarpsþáttunum Árið er, Bestu plötur ársins 1987, Bestu plötur níunda áratugarins, Bubbi segir sögur, Geymt en ekki gleymt, Rokkland og Segðu mér
Viðmælendur í fimmta þætti eru Bubbi Morthens og Magnús Þór Jónsson (Megas).
Viðtöl: Freyr Eyjólfsson, Ólafur Páll Gunnarsson, Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, Skúli Helgason og Snorri Már Skúlason.
Lagalisti:
Bubbi & MX 21 - Skyttan
Bubbi & MX 21 - Skapar fegurðin hamingjuna
Bubbi - Silfraður bogi
Bubbi - Manstu
Bubbi - Aldrei fór ég suður
Bubbi - Menning
Bubbi - Frelsarans slóð
Bubbi - Dögun
Bubbi - Bak við veggi martraðar
Bubbi - Borgin mín
Bubbi - Foxtrot
Bubbi - Klóakkrossfarar
Bubbi - President Song
Bubbi - Serbian Flower
Bubbi - Moon In The Gutter
Bubbi - Voices For Freedom
Bubbi - Whale song
Bubbi & Megas - Eitt til fimmtán glös
Bubbi & Megas - Einum of heví
Bubbi & Megas - Ég bið að heilsa
Megas – Litlir sætir strákar
Megas - Tvær stjörnur
Bubbi - Menn að hnýta snörur

Útvarpsfréttir.

Friðrik Ómar opnar Félagsheimilið á öðrum degi páska og fylgir hlustendum heim eftir góða páskahelgi.

Fréttir

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Andrea Jónsdóttir lýkur páskadagskrá Rásar 2 með laufléttri kvöldvakt að sínum hætti.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Indie-folk hljómsveitin Einakróna sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu, Rembihnútar. Verkefnið hófst sem einangrað „garageband-verkefni“ Bjarkar Magnúsdóttur á Soundcloud en hefur vaxið í fullskipaða fimm manna sveit. Platan er ljóðræn og persónuleg rannsókn á mannlegum samskiptum; erfiðleikanum við að vera opinskár, sorg, missi og þráhyggjunni að reyna að laga sambönd sem ekki verður bjargað.