Landinn í beinni
Landinn í beinni útsendingu í fyrsta sinn. Þátturinn verður sendur út frá Siglufirði en umsjónarmenn Landans verða einnig í beinni útsendingu frá Austfjörðum, Vestfjörðum og Reykjavík.
Landinn lætur sig fljóta í sundlauginni á Hofsósi og skoðar hvernig barneignir Íslendinga hafa þróast í áranna rás. Við búum til kartöfluflögur, förum í miðaldakvöldverð í Skálholti og berjumst gegn plastpokanotkun í Skagafirði.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn fer um landið og hittir fólk sem er að gera áhugaverða og skemmtilega hluti. Umsjónarmenn eru Gísli Einarsson, Birna Pétursdóttir, Edda Sif Pálsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Einar Rafnsson, Jóhannes Jónsson og Gunnlaugur Starri Gylfason.