Landinn í beinni
Landinn í beinni útsendingu í fyrsta sinn. Þátturinn verður sendur út frá Siglufirði en umsjónarmenn Landans verða einnig í beinni útsendingu frá Austfjörðum, Vestfjörðum og Reykjavík.
Landinn bakar kransakökur með fermingarbörnum á Blönduósi og fjallar um byggðaþróun í Skaftárhreppi. Við förum á tónleika í heimahúsi, heimsækjum skólabörn á Hellu sem eru með hænuunga í fóstri og hittum mann sem fær borgað fyrir að klifra í trjám.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn fer um landið og hittir fólk sem er að gera áhugaverða og skemmtilega hluti. Umsjónarmenn eru Gísli Einarsson, Birna Pétursdóttir, Edda Sif Pálsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Einar Rafnsson, Jóhannes Jónsson og Gunnlaugur Starri Gylfason.