Landinn í beinni
Landinn í beinni útsendingu í fyrsta sinn. Þátturinn verður sendur út frá Siglufirði en umsjónarmenn Landans verða einnig í beinni útsendingu frá Austfjörðum, Vestfjörðum og Reykjavík.
Í næsta þætti Landans borðum við súkkulaði á Siglufirði. Við kynnumst gamalli veiðitækni sem notuð er á Mývatni en upprunnin í Kanada. Við skoðum kolsýrunámu í Grímsnesi, tökum þátt í Starfamessu á Selfossi og við förum á útgáfutónleika Slitinna strengja á Akranesi.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn fer um landið og hittir fólk sem er að gera áhugaverða og skemmtilega hluti. Umsjónarmenn eru Gísli Einarsson, Birna Pétursdóttir, Edda Sif Pálsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Einar Rafnsson, Jóhannes Jónsson og Gunnlaugur Starri Gylfason.