Aðventugluggar Grundarfjarðar
Grundarfjarðarbær stendur fyrir því að opna svokallaða aðventuglugga, einn á hverjum degi, frá fyrsta desember og til jóla. „Það eru fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar í bænum sem…
Grundarfjarðarbær stendur fyrir því að opna svokallaða aðventuglugga, einn á hverjum degi, frá fyrsta desember og til jóla. „Það eru fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar í bænum sem taka að sér að skreyta glugga fyrir hvern dag og svo verður úr þessu skemmtilegur ratleikur eða getraun. Við birtum mynd af glugga dagsins um morguninn og svo getur fólk giskað á hvar hann er eða rölt um bæinn og leitað. Þetta hefur fallið vel í kramið og vakið mikla athygli," segir Þuríður Gía Jóhannesdóttir hjá Grundarfjarðarbæ.

Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.