Kveikur

Leyft öllum aldurshópum

Bitcoin og Raufarhöfn

Bitcoin er í tísku og mikið til umræðu. Þessi græðir, hinn tapar, lögreglan varar við svindli en samt vita fæst okkar almennilega hvað bitcoin er. Bitcoin er rafmynt, peningur sem hægt er að senda um internetið. Við reynum að skýra það á mannamáli. Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um Raufarhöfn. Fyrir 5 árum síðan mat Byggðastofnun það svo að það væri sú byggð í landinu sem stæði hvað höllustum fæti. Staða Raufarhafnar á þessum tíma leiddi til þess að þorpið varð fyrsta viðfangsefni Byggðastofnunar í verkefninu Brothættar byggðir - og þannig fyrirmynd annarra verkefna víðar á landinu. En hefur staða Raufarhafnar batnað?

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kveikur

Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.

Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Brynja Þorgeirsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Ingvar Haukur Guðmundsson og Árni Þór Theodórsson.

Þættir

,