• 00:00:07Íslenskir sendifulltrúar á Gasa
  • 00:08:21sjálfsvígsforvarnir
  • 00:19:39Hamraborg festival

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Íslenskir sendifulltrúar á Gasa, sjálfsvígsforvarnir og Hamraborg Festival

Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur ljósmóður og Ágústu Hjördís Kristinsdóttur hjúkrunarfræðing á Landspítala í þættinum. Þær störfuðu í fimm vikur á neyðarsjúkrahúsi í Rafah í suðurhluta Gasa í sumar og fóru sem sendifulltrúar Rauða krossins á Íslandi. Þær hikuðu ekki við að fara þegar kallið kom en segja að aðstæður á svæðinu séu ómannúðlegar og óöryggi mikið. Nú stendur yfir Gulur september, vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Lífsbrú, miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá Embætti landlæknis veitti í fyrsta sinn viðurkenningu á dögunum fyrir forvarnarstarf í málaflokknum. Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur og Gunnhildur Ólafsdóttir, fagstjóri hjá Píeta samtökunum hlutu verðlaunin og voru gestir í Kastljósi. Í lok þáttar heimsækir Guðrún Sóley Gestsdóttir Hamraborg en þar fer nú fram árleg listahátíð með tilheyrandi tískusýningum og tónlist.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,