Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Kópavogsmódelið í leikskólamálum

Opinber umræða um leikskóla hefur lengi verið neikvæð. Biðlistar, mygla og mannekla hafa einkennt umræðuna og sveitarfélögin leitað leiða til að bæta þjónustuna. Kópavogsbær boðaði síðasta haust breytta stefnu í leikskólamálum sem sneri að styttingu dvalartíma barna og samhliða því breytingu á gjaldskrá. Skiptar skoðanir hafa verið á breyttu fyrirkomulagi en fleiri sveitarfélög hafa nú farið svipaða leið. Kópavogsmódelið svokallaða í leikskólamálum var tekið fyrir í Kastljós þætti kvöldsins. Rætt var við Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra í Kópavogi Auður Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélags Íslands.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,